Handbolti

Sigurgöngu Þóris og norsku stelpnanna lokið á ÓL | Leika um bronsið í Ríó

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. Vísir/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta verður ekki Ólympíumeistari á þriðju leikunum í röð en liðið tapaði með minnsta mun eftir framlengdan leik á móti Rússlandi í undanúrslitum í nótt.

Rússnesku stelpurnar unnu leikinn 38-37 eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18-16, en staðan var jöfn 31-31 eftir venjulegan leiktíma.

Rússar skoruðu sigurmarki sitt úr vítakasti en Camilla Herrem fékk dauðafæri til að tryggja Noregi aðra framlengingu en vippa hennar skoppaði framhjá markinu. Rússar fögnuðu því sigri en norsku stelpurnar voru sumar óhuggandi eftir leikinn.

Norska liðið byrjaði vel en 7-1 kafli Rússa í fyrri hálfleik breytti miklu. Rússarnir voru einu til þremur mörkum yfir í kjölfarið en norsku stelpurnar náðu alltaf að halda sér inn í leiknum.

Rússarnir voru alltaf á undan og það var seigla norska liðsins sem kom leiknum í framlengingu. Norska liðið byrjaði framlenginguna betur en svo féll allt aftur í sama farið og á endanum rann tíminn út hjá norska liðinu.

Þórir Hergeirsson var fyrir leikinn búinn að stýra norska liðinu til sigurs í sex undanúrslitaleikjum í röð og vinna gull á síðustu tveimur stórmótum, HM 2015 og EM 2014.

Nora Mörk átti enn einn stórleikinn fyrir norska liðið og skoraði 14 mörk en hún var ekki með þegar Noregur vann hin tvö gullverðlaun sín á leiknum.  

Rússland hefur unnið alla sjö leiki sína á leikunum undir stjórns hins litríka og reynslumikla þjálfara Yevgeni Trefilov en liðið er að spila um verðlaun á stórmóti í fyrsta skiptið í sjö ár.  

Noregur er handhafi allra þriggja stóru titlana en mun nú missa Ólympíutitilinn til annaðhvort Rússlands eða Frakklands sem spila um gullið á þessum Ólympíuleikum.

Norsku stelpurnar spila aftur á móti um bronsverðlaunin á laugardaginn á móti Hollandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×