Handbolti

Sigurganga Fram heldur áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ragnheiður var einu sinni sem oftar markahæst hjá Fram.
Ragnheiður var einu sinni sem oftar markahæst hjá Fram. vísir/valli
Sigurganga Fram í Olís-deild kvenna heldur áfram, en í dag unnu þær þriggja marka sigur, 20-17, á ÍBV í Safamýrinni.

Fram leiddi með fmim mörkum í hálfleik 11-6, en að lokum varð munurinn þrjú mörk, 20-17 og sjötti sigur Fram í sjö leikjum staðreynd.

Safamýraliðið er á toppi deildarinnar með 13 stig, en Fram er með tveggja stiga forskot á Stjörnuna. ÍBV er í fimmta sætinu með 6 stig.

Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst hjá Fram með sjö mörk, en Ester Óskarsdóttir var langmarkahæst hjá ÍBV með áta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×