Fótbolti

Sigurður Ragnar reyndi að fá íslenskar landsliðskonur til Kína | „Besta peningatilboðið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir. Vísir/Anton
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og núverandi þjálfari kínverska liðsins Jiangsu Suning, hafði áhuga á því að fá að minnsta kosti tvær íslenskar landsliðskonur til Kína.

Sigurður Ragnar ræddi bæði við Dagnýju Brynjarsdóttur og Hallberu Guðnýju Gísladóttur um möguleikanna á því að þær spiluðu með kínverska liðið. Þetta kemur fram í frétt Víðis Sigurðssonar í Morgunblaðinu í dag.

Dagný og Hallbera staðfestu þetta báðar en þær tóku báðar íslenska landsliðið og Evrópukeppnina í Hollandi fram yfir mögulega Kínaferð. Það er ljóst að samningur þeirra við Jiangsu Suning hefði geta haft mikil áhrif á þátttöku þeirra í undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópumótið.

Það er ljóst að Kínverjarnir voru ekki að bjóða neina smáaura. „Þetta er besta samningstilboð peningalega, sem ég hef nokkurn tíma fengið þannig að ég hefði ef til vil hugsað málið aðeins lengur ef ekki væri svona stórt ár hjá landsliðinu,“ sagði Hallbera Guðný Gísladóttir við Morgunblaðið en hún hefur samið við sænska liðið Djurgården.

Dagný Brynjarsdóttir er samningsbundin bandaríska liðinu Portland Thorns og því hefði kínverska liðið þurft að kaupa hana. „Þetta náði aldrei svo langt að það mætti kallast viðræður,“ sagði Dagný við Morgunblaðið.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson náði á dögunum í norsku landsliðskonuna Isabell Lehn Herlovsen og hin brasilíska Gabriela Zanotti er einnig búin að semja við kínverska liðið. Herlovsen er 28 ára gömul og hefur skorað 50 mörk fyrir norska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×