Körfubolti

Sigurður leysir Helga Jónas af hólmi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helgi Jónas er hann var þjálfari Grindavíkur.
Helgi Jónas er hann var þjálfari Grindavíkur.
Keflavík er búið að skipta um þjálfara hjá karlaliðinu en Helgi Jónas Guðfinnsson er hættur af heilsufarsástæðum.

Helgi Jónas hefur verið að glíma við hjartsláttartruflanir og segir starfinu lausu af þeim sökum. Hann treystir sér ekki til þess að halda áfram.

Samkvæmt heimildum Vísis er körfuknattleiksdeild Keflavíkur búin að ná samkomulagi við Sigurð Ingimundarson og verður skrifað undir samning við hann síðar í kvöld.

Sigurður er þjálfari kvennaliðsins og hefur áður verið þjálfari karlaliðsins. Hann veit því vel að hverju hann gengur og leikmenn ættu einnig að vita hvernig þjálfara þeir fá í Sigurði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×