Innlent

Sigurður Ingi tilkynnti þingflokknum ekki um framboð sitt á fundinum í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra. vísir/anton brink
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins tilkynnti þingflokknum ekki um framboð sitt til formanns á þingflokksfundinum sem haldinn var í dag. Vísir greindi frá framboði Sigurðar Inga fyrr í kvöld en boðað var til þingflokksfundar hjá Framsókn í dag með mjög skömmum fyrirvara.

Fundurinn hófst um klukkan 13 og stóð til klukkan 16:30. Sigurður Ingi fór þó af fundinum um tveimur tímum áður en honum lauk og gaf ekki kost á viðtali. Eftir fundinn náðu fréttamenn tali af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni flokksins sem kvaðst meta stöðu sína innan flokksins góða.

Fréttastofa náði tali af Sigurði Inga í kvöld skömmu og sagðist hann telja óheppilegt fyrir flokkinn að halda áfram í því andrúmi sem hann er nú.

„Ég held að það sé best að fá skýra lausn og niðurstöðu í málið á flokksþingi hvernig sem hún verður og þá hefur sá sem kosinn er formaður óskorað umboð flokksmanna til þess að ganga til kosninga. Ég held að það sé besta leiðin.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×