Innlent

Sigurður Ingi segist betri kostur en Sigmundur Davíð

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra segir að hann sé betri kostur en Sigmundur Davíð í formannskjöri Framsóknarflokksins um næstu helgi og að atburðir síðustu daga hafi hvatt hann til að létta á þeim þrýstingi sem hann hefur fengið vegna formannsframboðs. Tvöfalt kjördæmaþing Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fór fram á Selfossi í dag og fékk Sigurður Ingi 100% kosningu í oddvitasætið.

Tvöfalt kjördæmaþing Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fór fram á Hótel Selfossi í dag. Fimm einstaklingar gáfu kost á sér í fimm efstu sætin. Sigurður Ingi Jóhannsson gaf kost á sér í fyrsta sæti og fékk 100% kosningu. Silja Dögg Gunnarsdóttir gaf kost á sér í annað sæti og var sjálfkjörin en þrír Framsóknarmenn gáfu kost á sér í þriðja sæti.

Eftir atkvæðagreiðslu var Ásgerður K. Gylfadóttir kosin í þriðja sætið, og Einar Freyr Elínarson í fjórða sæti en þriðji frambjóðandinn um þriðja sætið, Fjóla Hrund Björnsdóttir náði ekki kjöri og ákvað að þiggja ekki önnur sæti á listanum.

Ástæða þess að kosið var um oddvitasætið þó aðeins einn hafi verið í framboði er sú að Sigurður Ingi vilda sjá hvaða stuðning hann hafði í kjördæminu en í gær tilkynnti hann að hann hyggst bjóða sig fram í embætti formanns, gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi.

„Þetta er erfið ákvörðun að taka ákvörðun um að fara í kosningu um formann svona stuttu fyrir kosningar. Það hefur hins vegar engum leynst að það er ólga innan Framsóknarflokksins. Ég tel að besta leiðin til þess að leysa slík mál sé með lýðræðislegum hætti,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra.

Ástæða þess að Sigurður Ingi tilkynnti um formannsframboð sitt í gær er sú að hann vildi ekki hafa óeðlilega spenna á kjördæmaþinginu í dag

„Og líka bar einfaldlega að svona atburðir síðustu daga hafa styrkt mig í þeirri trú að það sé rétt að ég gefi kost á mér sem formaður og láti undan þeim þrýstingi sem á mig hefur verið settur,“ segir Sigurður Ingi.

Miðað við það sem Sigmundur Davíð hefur sag ertu ekki að ganga á bak orða þinna með því að bjóða þig fram gegn honum?

„Nei alls ekki ég lagði mig satt best að segja mjög mikið fram, allt frá því að þetta gerðist með viðtalið og Panamaskjölin í byrjun apríl og ég tek við sem forsætisráðherra bæði að verja hann og skapa honum svigrúm. Og ég er ekki að gefa kost á mér bara til þess að kjósa. Ég er að gefa kost á mér vegna þess að ég tel að ég væri betri kostur,“ segir Sigurður Ingi.


Tengdar fréttir

Umræður á fundinum voru erfiðar en hreinskilnar

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hjó á hnútinn í Framsóknarflokknum í gær með því að bjóða sig fram til formanns flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir óvenjuharkalegt uppgjör eiga sér stað innan flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×