Innlent

Sigurður Ingi ekki viðstaddur fund forsætisráðherra Norðurlandanna

Atli Ísleifsson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
Ragnhildur Arnljótsdóttir, Lars Lökke Rasmussen, Juha Sipilä, Erna Solberg og Stefan Löfven.
Ragnhildur Arnljótsdóttir, Lars Lökke Rasmussen, Juha Sipilä, Erna Solberg og Stefan Löfven. mynd/twitter
Sigurður Ingi Jóhannsson er ekki viðstaddur fund forsætisráðherra Norðurlandanna sem nú fer fram á Álandseyjum. Í hans stað situr Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins fundinn.

Aðrir forsætisráðherrar Norðurlandanna, þau Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs og Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, eru mætt til fundarins en Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands, býður til hans.

Dagskrá ráðherranna í gær var óformleg þar sem þeir heimsóttu meðal annars hólmann Klobben í skerjagarðinum. Í dag munu ráðherrarnir ræða varnar-og öryggismál, innflytjendamál, útgöngu Bretlands úr ESB og norrænt samstarf.

Eins og ítarlega hefur verið greint frá er nú mikil ólga innan Framsóknarflokksins. Sigurður Ingi gegnir varaformennsku í flokknum en hann hefur nú boðið sig fram til formanns gegn sitjandi formanni Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Kosið verður um formanninn á flokksþingi Framsóknar sem fer fram um næstu helgi.

Þá verður jafnframt kosið um varaformanninn en Eygló Harðardóttir félags-og húsnæðismálaráðherra og ritari flokksins hefur lýst því yfir að hún sækist eftir því embætti verði skipt um formann. Þá er Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra að íhuga framboð til varaformanns en hún styður Sigmund Davíð sem formann flokksins. Í dag lýsti svo Jón Björn Hákonarson yfir framboði til ritara en hann vill hvorki lýsa yfir stuðningi við Sigmund Davíð né Sigurð Inga.

Hvorki náðist í Sigurð Inga við vinnslu fréttarinnar né aðstoðarmann hans til að óska eftir skýringum á fjarveru forsætisráðherra á fundinum á Álandseyjum. Þá náðist heldur ekki í upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar.

Uppfært klukkan 09:52: Benedikt Sigurðsson aðstoðarmaður Sigurðar Inga segir í samtali við fréttastofu að meginástæða þess að forsætisráðherra sé fjarverandi á fundi ráðherranna sé sú að þinglok hafi átt að vera á morgun og að mörg stór mál liggi fyrir þar sem þurfi að klára. Því sé tímanum betur varið hér heima að klára þingið auk þess sem undirbúningur fyrir flokksþing Framsóknarflokksins standi nú yfir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×