Innlent

Sigurður Ingi: Telur sig eiga góða möguleika að verða formaður Framsóknarflokksins

Sveinn Arnarsson skrifar
Sigurður Ingi segir ákvörðunin um að gefa kost á sér í formannsframboð hafa verið sér erfiða.
Sigurður Ingi segir ákvörðunin um að gefa kost á sér í formannsframboð hafa verið sér erfiða. Vísir/Jóhann K Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra segist hafa ákveðið að greina frá formannsframboði sínu til Framsóknarflokksins í gær til þess að ekki yrði óeðlileg spenna í loftinu á kjördæmaþingi flokksins í Suðurkjördæmi í dag. Þar gaf Sigurður Ingi kost á sér í fyrsta sæti listans og hlaut 100% atkvæða.



Staða Sigmundar Davíðs innan Framsóknar virðist ekki eins traust og hann hefur sagt hana vera í viðtölum við fjölmiðla.Vísir
Er bjartsýnn á sigur

Sigurður Ingi segir þá ákvörðun að gefa kost á sér í formannssætið upp á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni hafa verið sér erfiða.

„Það hefur ekki leynst neinum að það er ólga innan Framsóknarflokksins um forustuna og formanninn,” segir Sigurður Ingi. “Ég hef fundið það í samtölum að þrýstingur og áskoranir um að ég gefi kost á mér hafa aukist síðustu vikurnar. Mér fannst eðlilegast að hleypa þessari ólgu út með þeim lýðræðislega hætti að setja það í hendurnar á flokksmönnum á flokksþingi.“

Miðað við það sem Sigmundur Davíð hefur sagt, ertu að ganga á bak orða þinna með því að bjóða þig fram gegn honum?

„Alls ekki. Ég lagði mig satt best að segja mikið fram, allt frá því að þetta gerðist með viðtalið og Panamaskjölin í byrjun apríl og ég varð forsætisráðherra, að verja hann og skapa honum svigrúm og að koma í veg fyrir að það yrðu fylkingar innan Framsóknarflokksins. Það hefur gengið mjög vel eftir. Það var ekki sjálfgefið að það tækist að búa til þessa stöðu þar sem þingið og ríkisstjórnin hefur getað klárað mörg og mikilvæg mál sem skipta máli fyrir land og þjóð. Það er ljóst að á síðustu vikum hefur það kristallast að það er ekki samstaða innan flokksins um formanninn.“

Hefur verið rætt um það við Sigmund Davíð að stíga til hliðar fyrir flokksþingið næstu helgi?

„Ég veit ekkert um það. Ég tók mína ákvörðun í gær grundvallaða á því mati sem ég varð að meta miðað við áskoranir sem ég hef fengið.“

Hvernig meturðu möguleika þína í formannsframboðinu næstu helgi?

„Maður býður sig auðvitað ekki fram nema að maður telji að möguleikarnir séu góðir en það er hins vegar í höndum flokksmanna.“


Tengdar fréttir

Umræður á fundinum voru erfiðar en hreinskilnar

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hjó á hnútinn í Framsóknarflokknum í gær með því að bjóða sig fram til formanns flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir óvenjuharkalegt uppgjör eiga sér stað innan flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×