Íslenski boltinn

Sigurbergur framlengdi við Keflavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sigurbergur skrifar undir nýja samninginn.
Sigurbergur skrifar undir nýja samninginn. mynd/keflavík
Knattspyrnukappinn Sigurbergur Elísson hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík sem gildir út leiktíðina 2018.

Sigurbergur hefur verið í herbúðum Keflavíkur allan sinn feril. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið árið 2007.

Hann er búinn að spila 86 leiki fyrir Keflavík á ferlinum og skora í þeim 16 mörk.

Sigurbergur átti mjög gott sumar fyrir Keflavík þar sem hann skoraði 7 mörk í 19 leikjum í Inkasso-deildinni. Hann var orðaður við einhver félög en nú er ljóst að hann verður áfram hjá uppeldisfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×