Lífið

Sigur Rós rekin af sviðinu í Game of Thrones

Tinni Sveinsson skrifar
Hljómsveitin Sigur Rós kom fram í nýjasta þætti Game of Thrones, sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi.

Þar spilaði sveitin sína útgáfu af þjóðlagi úr þáttunum, sem heitir The Rains of Castamere. Tilefnið var konunglegt brúðkaup Joffrey Baratheon og Margaery Tyrell, sem kallað er Fjólubláa brúðkaupið.

Hægt er að sjá atriðið úr þættinum í spilaranum hér fyrir ofan. Joffrey er þekktur fyrir það að vera skaphundur mikill og rekur hann sveitina af sviðinu þegar honum tekur að leiðast flutningurinn.

Meðlimir Sigur Rósar; Orri Dýrason, Georg Hólm og Jón Þór Birgisson, fóru til Króatíu á síðasta ári vegna gerð þáttanna. Höfundar þáttanna, David Benioff og Dan Weiss, réðu þremenningana því að þeir eru miklir aðdáendur sveitarinnar og hlustuðu á tónlist hennar við tökur þáttanna á Íslandi.

Stutt er síðan Sigur Rós fékk gestahlutverk í Simpsons-þættinum The Saga of Carl sem vakti mikla athygli.



Í Game of Thrones í síðustu viku var meðal annars atriði sem tekið var upp á Þingvöllum.
Tökulið Game of Thrones hefur þrisvar komið hingað til lands og myndaði atriði í fjórðu seríu síðastliðið sumar. Tökur fóru meðal annars fram í Þjórsárdal, á Hengilssvæðinu og Stekkjargjá á Þingvöllum.

Í þættinum sem sýndur var í síðustu viku mátti einmitt sjá atriði sem tekið var upp á Þingvöllum.

Kraftajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson fer einnig með hlutverk í seríunni og birtist hann því væntanlega, eins og Sigur Rós, á sjónvarpsskjám út um allan heim á næstu vikum.

Mikil tenging hefur verið á milli Game of Thrones og þekktra tónlistarmanna. Sveitirnar The National og The Hold Steady hafa báðar átt lög í þáttunum og sömdu lög sérstaklega fyrir þá sem voru innblásin af skrifum George R.R. Martin. Þá léku Coldplay-trommarinn Will Champion og Gray Lightbody úr Snow Patrol aukahlutverk í þriðju seríu.

Game of Thrones-þættirnir eru frumsýndir á HBO í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldum og sýndir á Stöð 2 degi seinna, á mánudagskvöldum klukkan 21.

Aðdáendur Sigur Rósar voru hæstánægðir og létu sitt ekki eftir liggja þegar þátturinn var sýndur. Hér atriðið túlkað með GIF-mynd: Sigur Rós GIF Hér má hlusta á lagið í heild sinni:
Sigur Rós mætti á frumsýningu Game of Thrones í Bandaríkjunum á dögunum. Hér eru strákarnir með höfundi þáttanna, George R. R. Martin:

Tengdar fréttir

20 ára afmæli Sigur Rósar

Hljómsveitin Sigur Rós hélt upp á tuttugu ára afmælið sitt með pompi og prakt en gleðskapurinn fór fram í Iðnó síðastliðið laugardagskvöld

Sigur Rós kemur fram í Game of Thrones

Íslenska hljómsveitin Sigur Rós mun koma fram í fjórðu sjónvarpsþáttaröðinni af Game of Thrones. Eru staddir í Króatíu í tökum.

Sigur Rós kom fram í þætti Leno

Hljómsveitin Sigur Rós kom fram í þætti Jay Leno í gær. Hljómsveitin er nú á ferðalagi um Bandaríkin til þess að kynna nýja plötu sína, Kveikur, sem kemur út um miðjan júní. Hljómsveitin hefur vakið mikla athygli að undanförnu en tónlist sem var í Simpsons þætti sem segja má að hafi verið tileinkaður Íslandi var einmitt samin af Sigur Rós. Atriði þeirra í þætti Jay Leno í gær var allt hið glæsilegasta. Myndband Sigur Rósar úr Jay Leno þætti má finna á Vimeo síðu hljómsveitarinnar og má leiða að því líkum að hljómsveitin hafi fengið leyfi NBC stöðvarinnar, sem sýnir þætti Leno, til þess að birta þættina.

Fyrstir til að semja tónlistina í Simpsons

Íslenska hljómsveitin Sigur Rós er fyrsta hljómsveitin í sögu Simpsons-þáttanna sem semur tónlist sérstaklega fyrir þáttinn. Sveitinni bregður fyrir í lokaþætti 24. þáttaraðarinnar sem verður sýnd vestanhafs 19. maí næstkomandi, og á Stöð 2 daginn eftir.

Tekur þátt í stórum og mikilvægum bardaga

Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson túlkar Ser Gregor Clegane í fjórðu þáttaröð Game of Thrones. Sýningar hefjast á Stöð 2 7. apríl en þættirnir verða sýndir á Íslandi aðeins tæpum sólarhring eftir frumsýningu í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×