Tónlist

Sigur Rós með lag í Game of Thrones

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Hljómsveitin Sigur Rós á lag í fjórðu seríunni af Game of Thrones en lagið heitir The Rains of Castamere.

Jónsi Birgisson, Georg Hólm og Orri Páll Dýrason, meðlimir hljómsveitarinnar, mættu á frumsýningu seríunnar í Lincoln Center í New York um miðjan mars eins og Fréttablaðið sagði frá. Eftir frumsýninguna röbbuðu þeir við George R.R. Martin, höfund bókanna sem sjónvarpsþættirnir eru byggðir á. 

Þremenningarnir fóru til Króatíu á síðasta ári vegna gerð þáttanna en höfundur Game of Thrones, David Benioff og Dan Weiss, eru miklir aðdáendur Sigur Rósar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×