Körfubolti

Sigur í fyrsta leik Rondo með Dallas | Myndbönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rondo í eldlínunni í nótt.
Rondo í eldlínunni í nótt. Vísir/Getty
Rajon Rondo skoraði sex stig og gaf níu stoðsendingar í fyrsta leik sínum fyrir Dallas Mavericks í gær. Mavericks unnu þreytta San Antonio menn, 93-99.

Monta Ellis fór á kostum í liði Dallas og skoraði 38 stig, en Marco Belinelli var stigahæstur hjá San Antonio Spurs með 21 stig. San Antonio fór í þríframlengdan leik í fyrrinótt og það greinilega sat í þeim í nótt.

Los Angeles Clippers vann nauman sigur á Milwaukee, en Blake Griffin tryggði sigur Clippers fimm sekúndum fyrir leikslok þegar hann ýtti boltanum niður.

Phoenix Suns vann góðan sigur á New York á útivelli, en Eric Bledsoe (25 stig) og Isaiah Thomas (22 stig) spiluðu stóran part í sigrinum. Carmelo Anthony var stigahæstur hjá Knicks með 25 stig.

Hér að neðan má sjá öll úrslit næturinnar og skemmtileg myndbönd.

Öll úrslit næturinnar:

Phoenix Suns - New York Knicks 99-90

San Antonio - Dallas 93-99

Portland - New Orleans 114-88

Indiana - Denver 73-76

Utah - Charlotte 86-104

Milwaukee - Los Angeles Clippers 102-106

Atlanta - Houston 104-97

Mikilvæg karfa Griffin: Tilþrif í boði Houston: Fyrsti leikur Rondo með Dallas:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×