Fótbolti

Sigur í fyrsta heimaleik Söru

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sara í leik með Rosengård gegn Wolfsburg.
Sara í leik með Rosengård gegn Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg sem vann fyrsta sigur tímabilsins gegn Bayer Leverkusen á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni knattspyrnu í dag.

Sara sem kom inn af bekknum í fyrsta leiknum gegn Sand í markalausu jafntefli byrjaði á miðjunni í dag en staðan var markalaus í hálfleik.

Anja Mittag kom Wolfsburg yfir í upphafi seinni hálfleiks en stuttu síðar bætti Ramona Bachmann við öðru marki Wolfsburg.

Lauk leiknum með 2-0 sigri Wolfsburg sem lyftir sér upp að hlið Bayern Munchen í 4. sæti þýsku deildarinnar en liðin tvö hafa barist um þýska titilinn undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×