Handbolti

Sigur hjá Kolding í markaleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron og félagar eru með 11 stig af 12 mögulegum í dönsku deildinni.
Aron og félagar eru með 11 stig af 12 mögulegum í dönsku deildinni. Vísir/Getty
Lærisveinar Arons Kristjánssonar í KIF Kolding báru sigurorð af Lemvig-Thyborøn Håndbold í miklum markaleik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur voru 29-37, Kolding í vil. Staðan í hálfleik var 12-20.

Bo Spellerberg átti frábæran leik fyrir Kolding og skoraði tólf mörk. Kasper Irming kom næstur með sex mörk og sænska stórskyttan Kim Andersson skoraði fimm.

Kolding situr á toppi deildarinnar með 11 stig eftir sex umferðir. Århus Håndbold kemur næst með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×