Fótbolti

Sigur hjá Hannesi og Kristjáni í Hollandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes stóð í ströngu í kvöld.
Hannes stóð í ströngu í kvöld. vísir/getty
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hélt marki sínu hreinu þegar NEC Nijmegen vann 0-1 sigur á Willem II í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Nijmegen, sem er nýliði, er í 6. sæti deildarinnar með sex stig eftir fjórar umferðir. Hannes hélt einnig hreinu þegar Nijmegen vann 1-0 sigur á Excelsior í 1. umferðinni.

Kristján Gauti Emilsson kom inn á sem varamaður í Nijmegen á 61. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði Navarone Foor eina mark leiksins og tryggði Nijmegen stigin þrjú.

Hannes, Kristján og félagar sækja Roda heim í næsta deildarleik sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×