Innlent

„Sonur minn er ekki tilraunadýr“

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Fjölskyldan bjó á Ásbrú veturinn 2011-2012 og var sonur þeirra alvarlega veikur á tímabilinu.
Fjölskyldan bjó á Ásbrú veturinn 2011-2012 og var sonur þeirra alvarlega veikur á tímabilinu. Fréttablaðið/Heiða
Sandra Sif Rúnarsdóttir og fjölskylda fóru í mál við Háskólavelli vegna stúdentaíbúðar sem þau leigðu á Ásbrú veturinn 2011 til 2012. Sandra og ungur sonur hennar urðu alvarlega veik vegna myglusvepps en hún var heima í fæðingarorlofi á tímabilinu.

Sandra Sif Rúnarsdóttir
Gerð var krafa um að fá leiguna endurgreidda sem og bætur fyrir innbú fjölskyldunnar sem hefur verið í geymslu frá því þau fluttu úr íbúðinni.

Héraðsdómur dæmdi að fjölskyldan fái húsaleiguna endurgreidda enda þyki það sannað að leigusali hafi vitað af rakaskemmdum í íbúðinni áður en fjölskyldan flutti inn.

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður fjölskyldunnar, segir málið fordæmisgefandi.

„Þetta er heilmikið fordæmi með tilliti til ábyrgðar leigusala. Ef húsnæði er leigt svona í upphafi leigusamnings getur leigjandi labbað út án leigugreiðslna.“

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður
Fjölskyldan fær aftur á móti ekki bætta búslóð sína heldur eingöngu greidd þrif á henni. Dómskvaddir matsmenn sögðu nokkuð líklegt að hægt væri að þrífa búslóðina og fór dómurinn eftir þeim orðum.

Sandra Sif segir niðurstöðuna ákveðinn sigur en varðandi búslóðina sé leigufélagið látið njóta vafans, en ekki heilsa sonar hennar. Hún mun skoða áfrýjun.

„Það hefur sannað sig að sumir einstaklingar verða svo veikir í myglunni að þeir geta aldrei verið í rými eða í kringum húsgögn sem hafa vott af myglugró í sér. Sonur minn dettur út um leið og hann fer í þannig umhverfi og verður mjög lasinn. Hann er í raun mannlegur myglumælir og ég mun ekki prófa hvort hann þoli að vera í kringum búslóðina aftur. Sonur minn er ekki tilraunadýr.“



Hólmsteinn Brekkan
„Ef þessu verður ekki hnekkt í Hæstarétti er þetta svaðalega fordæmisgefandi dómur. Bæði afgerandi og mikilvægur,“ segir Hómsteinn Brekkan framkvæmdastjóri Leigjendasamtakanna.

„Þetta er áfellisdómur á allt byggingareftirlit á Íslandi, alla byggingarfulltrúa og opinbert eftirlit með húsakosti.“

Hólmsteinn vonar að dómurinn veki leigusala til vitundar og hristi upp í kærunefnd húsamála.

Gunnar Ingi mætti í Bítið á Bylgjunni í morgun og ræddi dóminn. Upptökuna má heyra í spilaranum að neðan.


Tengdar fréttir

Í einangrun í sumarbústað vegna myglusvepps

Birgitta Braun getur ekki lifað eðlilegu lífi vegna myglusveppaveikinda. Hún er ein af mörgum sem eiga við alvarlegan heilsubrest að stríða en mæta skilningsleysi og ráðaleysi lækna.

Fá tæpar 1,2 milljónir króna vegna myglu í leiguíbúð

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Háskólagarða ehf. til þess að endurgreiða fyrrverandi leigjendum leigu sem þau höfðu greitt vegna myglu sem greindist í húsnæðinu eftir að leigjendurnir fluttu inn.

Myglusveppaþolendur hraktir úr vinnu

Þeir sem veikjast vegna myglusvepps á vinnustað hafa lítil sem engin réttindi þegar það kemur að fjárhagstapi, heilsutjóni eða atvinnuöryggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×