Innlent

Sigríður og Helgi gáfust upp á að bíða eftir Framsókn

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Frumvarpið hefur ekki verið rætt við aðra þingmenn.
Frumvarpið hefur ekki verið rætt við aðra þingmenn. Vísir/GVA/Ernir
Engin umræða hefur átt sér stað á milli tveggja þingmanna Samfylkingarinnar og fulltrúa annarra flokka á Alþingi vegna frumvarps um afnám verðtryggingarinnar.

„Við höfum ekki gert það,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, um hvort hún og Helgi Hjörvar flokksbróðir hennar hafi leitað eftir stuðningi við frumvarp sitt hjá þingmönnum annarra flokka.  „Við vorum alltaf að bíða eftir því að Framsókn kæmi sjálf fram með málið.“

Framsóknarflokkurinn hefur lofað afnámi verðtryggingar og hafa þingmenn flokksins á undanförnum mánuðum reynt að ýta á eftir aðgerðum til að efna það loforð. Ásmundur Einar Daðason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sagði í samtali við Vísi á mánudag að ljóst væri að lagt sé upp með að afnema verðtrygginguna. Það hefur þó ekki enn bólað á frumvarpi þess efnis.

Viss um stuðning í flokknum

Málið var rætt innan þingflokks Samfylkingarinnar áður en hún og Helgi tóku ákvörðun um að leggja það fram án þess að vera með stuðning flokksins á bak við sig. Árni Páll Árnason, formaður flokksins, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að frumvarpið væri ekki í samræmi við stefnu flokksins.

En eru fleiri en þau tvö innan þingflokksins sem styðja málið? „Ég held að það séu nú bara svona ýmsar skoðanir á þessu,“ segir hún. Þá segist hún einnig viss um að stuðningur við frumvarpið sé á meðal flokksmanna. „Ég veit að hjá svona hinum almenna flokksmanni eru margri sem styðja þetta.“

Mörg mál bíða eftir að komast á dagskrá þingsins en það er ekki að heyra annað en að Sigríður Ingibjörg sé sannfærð um að málið komist á dagskrá. „Ég ætla rétt að vona að þetta komist á dagskrá þingsins, en það er auðvitað undir forseta komið. Það eru mörg mál sem bíða,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Vilja banna verðtryggingu á nýjum neytendalánum

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar, þingmenn Samfylkingarinnar, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um bann við verðtryggingu á nýjum neytendalánum, þar með talið húsnæðislánum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×