Innlent

Sigríður Björk braut lög þegar hún sendi Gísla Frey greinargerðina

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglustjórinn sendi aðstoðarmanninum greinargerðina í tölvupósti daginn sem fréttir voru birtar byggðar á minnisblaði sem Gísli Freyr lak úr innanríkisráðuneytinu.
Lögreglustjórinn sendi aðstoðarmanninum greinargerðina í tölvupósti daginn sem fréttir voru birtar byggðar á minnisblaði sem Gísli Freyr lak úr innanríkisráðuneytinu.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir braut lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga þegar hún sendi Gísla Frey Valdórssyni greinargerð um hælisleitandann Tony Omos og fleiri aðila. Þetta er niðurstaða Persónuverndar.

Kjarninn greinir frá þessu en ekki er búið að birta úrskurðinn opinberlega. Samkvæmt upplýsingum frá Persónuvernd verður hann ekki birtur fyrr en á mánudag. 



Persónuvernd hefur undanfarið haft samskipti Sigríðar Bjarkar, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, og Gísla Freys, fyrrverandi aðstoðarmanns Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, til skoðunar.

„Ekki var gætt viðunandi öryggis við miðlun fyrrnefndra skýrsludraga til ráðuneytisins frá Lögreglunni á Suðurnesjum og fyrrnefndrar framburðarskýrslu frá Útlendingastofnun til ráðuneytisins,“ segir í hluta úrskurðarins sem Kjarninn hefur birt.

Lögreglustjórinn sendi aðstoðarmanninum greinargerðina í tölvupósti daginn sem fréttir voru birtar byggðar á minnisblaði sem Gísli Freyr lak úr innanríkisráðuneytinu. Gísli Freyr var nokkrum mánuðum síðar dæmdur fyrir lekann sem hann viðurkenndi eftir að hafa fyrst neitað.

Sigríður Björk var færð til í starfi og ráðinn lögregustjóri á höfuðborgarsvæðinu eftir að Stefán Eiríksson hætti í því starfi. Umboðsmaður Alþingis hefur gagnrýnt samskipti Hönnu Birnu við Stefán harðlega í skýrslu sem birt var nýverið. 

Staðan var ekki auglýst heldur skipaði Hanna Birna Sigríði sem nýjan lögreglustjóra. Hún gegnir þeirri stöðu í dag. 

Samkvæmt upplýsingum frá núverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum hefur úrskurður Persónuverndar ekki borist embættinu. Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóra segist í samtali við Vísi eiga von á henni í næstu viku.

Ekki hefur náðst í Sigríði Björk né Ólöfu Nordal, núverandi ráðherra lögreglumála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×