Handbolti

Sigrar hjá liðum Birnu og Þóreyjar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. vísir/ernir
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Glassverket sem valtaði yfir Gjerpen, 35-24, í norska kvennaboltanum í kvöld.

Lið Þóreyjar Rósu Stefánsdóttir, Vipers, vann einnig í kvöld er liðið mætti Byåsen. Lokatölur þar 27-22.

Þórey Rósa komst ekki á blað í kvöld en bæði skot hennar vildu ekki í markið.

Vipers er í öðru sæti norsku deildarinnar en Glassverket er í þriðja sæti. Larvik er á toppnum með fullt hús eftir fjórtán leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×