Handbolti

Sigrar hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi

Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson. vísir/getty
Tvö Íslendingalið voru á ferðinni í þýska handboltanum í kvöld í efstu tveim deildunum.

Lið Gunnars Steins Jónssonar, Gummersbach, vann flottan, en nauman, útisigur, 29-30, á Wetzlar. Gunnar Steinn skoraði eitt mark í leiknum.

Gummersbach er í tíunda sæti í úrvalsdeildinni.

EHV Aue vann svo öruggan heimasigur, 35-23, á Neuhausen í þýsku B-deildinni. Rúnar Sigtryggsson þjálfar lið Aue.

Bróðir Rúnars, Árni Þór, og sonur Rúnars, Sigtryggur, skoruðu báðir fimm mörk fyrir Aue. Hörður Fannar Sigþórsson skoraði þrjú mörk fyrir liðið og Bjarki Már Gunnarsson komst líka á blað og skoraði eitt mark.

Aue er enn í níunda sæti eftir leikinn og fer ekki upp að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×