Handbolti

Sigrar hjá Degi og Geir

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Dagur fagnaði sigri
Dagur fagnaði sigri vísir/getty
Füchse Berlin lagði Melsungen 27-24 á heimvelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Dagur Sigurðsson þjálfar liðið.

Melsungen var 15-13 yfir í hálfleik en Refirnir hans Dags náðu fljótt yfirhöndinni í seinni hálfleik og náðu að tryggja sér sigur í spennandi leik.

Iker Romero skoraði 7 mörk fyrir Füchse og Konstantin Igropulo 6. Michael Allendorf skoraði 5 mörk fyrir Melsungen.

Füchse er í sjötta sæti deildarinnar með 12 stig. Melsungen sigur eftir með 10 stig í 9. sæti.

Magdeburg sem Geir Sveinsson þjálfari lagði Wetzlar 33-30. Magdeburg var 16-11 yfir í hálfleik og var sigurinn öruggari en lokatölurnar gefa til kynna.

Robert Weber skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg og Steffen Fäth 9 fyrir Wetzlar.

Magdeburg er í 5. sæti deildarinnar með 13 stig en Wetzlar er með 8 stig í neðri hluta deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×