Golf

Signý Íslandsmeistari í höggleik í fyrsta sinn

Kristinn Páll Teitsson á Akranesi skrifar
Signý.
Signý. Mynd/GSÍ
Signý Arnórsdóttir er Íslandsmeistari í höggleik í kvennaflokki eftir að hafa borið sigur úr býtum á Íslandsmótinu á Akranesi í dag. Signý lék gríðarlega vel á lokahringnum en hún fékk alls sex fugla á hringnum.

Signý var með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn á Ólöfu Þórunni Kristinsdóttir og Sunnu Víðisdóttir eftir að hafa leikið stöðugt og gott golf fyrstu þrjá daga á Íslandsmótinu.

Signý lék gríðarlega vel í upphafi og var komin á parið eftir að hafa leikið á fjórum höggum undir pari á tíundu holu. Það var hinsvegar hart sótt að henni í dag.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni átti frábæran dag en hún lék á fimm höggum undir pari og var jöfn Signýju er hún lauk leik að þessu sinni. Þá sótti Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem varð Íslandsmeistari í höggleik á síðasta ári hart að Signýju en missti af góðu tækifæri til þess að saxa á hana er Ólafía þrípúttaði á sextándu braut.

Signý fékk tvo skolla með stuttu millibili á 13. og 14. braut sem hleypti Ólafíu og Valdísi inn í þetta á ný en hún átti heldur betur eftir að svara fyrir það.

Signý náði forskotinu á ný á sautjándu braut þegar hún setti niður pútt af tveggja metra færi, stuttu eftir að Valdís lauk leik og þurfti hún því aðeins par á 18. holu vallarins. Lék hún hana af miklu öryggi en hún setti boltann á besta stað og tvípúttaði fyrir Íslandsmeistaratitlinum.

Er þetta í fyrsta sinn sem hún stendur uppi sem Íslandsmeistari í höggleik en hún hefur næst komist því þegar hún lenti í öðru sæti í Grafarholtinu.

Lýkur mótinu eftir örskamma stund en Þórður Rafn Gissurarson er með örugga forystu í karlaflokkinum á sautjándu braut. Lesa má beina textalýsingu frá deginum hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×