Innlent

Sigmundur segir ákvörðun háskólans kalla á að fjárveitingum verði beint til skóla á landsbyggðinni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
„Menntastofnanir eru á meðal mikilvægustu innviða samfélagsins og þeir innviðir þurfa að vera traustir um allt land,“ skrifar ráðherrann.
„Menntastofnanir eru á meðal mikilvægustu innviða samfélagsins og þeir innviðir þurfa að vera traustir um allt land,“ skrifar ráðherrann. Vísir/Daníel
Ákvörðun Háskóla Íslands um að hætta íþróttakennaranámi á Laugarvatni kallar væntanlega á að fjárveitingum verði í auknu mæli beint til skóla á landsbyggðinni, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.

Í uppfærslu á Facebook-síðu sinni segir Sigmundur Davíð hætt við því að ákvörðun háskólans muni gera út af við hugmyndir um sameiningar eða aukið samstarf skólans við menntastofnanir á landsbyggðinni.

Forsætisráðherrann segir að fénu yrði þá varið á forsendum skólanna sjálfra, væri því veitt beint þangað í auknu mæli. „Menntastofnanir eru á meðal mikilvægustu innviða samfélagsins og þeir innviðir þurfa að vera traustir um allt land,“ skrifar ráðherrann.

Það er hætt við því að ákvörðun HÍ um að leggja af nám á Laugarvatni muni gera út af við hugmyndir um sameinginar eða...

Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Saturday, February 20, 2016
Með ummælum sínum bætist Sigmundur Davíð í hóp þingmanna, einkum úr Suðurkjördæmi, sem hafa gagnrýnt ákvörðun Háskóla Íslands um að hætta kennslu á Laugarvatni. Einn þingmaður, Haraldur Einarsson, flokksbróðir forsætisráðherra, gekk svo langt að segja að skólinn hefði glatað trausti sínu.

„Þess vegna er óhjákvæmilegt að velta upp hlutverki Háskóla Íslands og hvort hann sé fær um að halda úti sinni starfsemi á Landsbyggðinni,“ skrifaði hann um málið á Facebook.

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra og þingmaður Suðurkjördæmis, hefur einnig látið óánægju sína í ljós og gagnrýnt skólann harðlega fyrir að láta sér detta það í hug að flytja íþróttakennaranámið frá Laugarvatni til Reykjavíkur.

„Það er auðvitað oft á tíðum dýrara að reka stofnanir úti á landi. Ef Háskóli Íslands treystir sér ekki til þess, hvernig ætlar hann að koma inn í framtíðarendurskipulagningu að háskólastiginu á Íslandi? Hver þorir að fara í samstarf við Háskóla Íslands ef allt á að enda í Vatnsmýrinni? Ég trúi ekki að þetta verði niðurstaðan,“ sagði hann í samtali við fréttastofu um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×