Lífið

Sigmundur Davíð sendi kveðju í gæsapartý unnustu Björns Inga

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Björn Ingi og Kolfinna Von eru trúlofuð.
Björn Ingi og Kolfinna Von eru trúlofuð. Vísir/Daníel
Kolfinna Von Arnarsdóttir almannatengill mun ganga að eiga unnusta sinn Björn Inga Hrafnsson, eiganda Pressunnar og DV, nú í júní. Hún var gæsuð á laugardaginn og var dagurinn viðburðaríkur. Það sem bar hvað hæst var kveðja frá sjálfum forsætisráðherra og heimsókn frá Magga Mix.

„Það var rosalega gaman,“ segir Kolfinna í samtali við Vísi. Hún var sótt af tónlistarmanninum Gazman  klukkan átta um morguninn og bundið var fyrir augu hennar. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaður í fótbolta, var í baksæti bílsins og tók allt upp á myndband. Síðan tók hver skemmtiviðburðurinn við á fætur öðrum en stelpurnar ferðuðust um í partýrútu

Sigmundur Davíð og Maggi Mix voru báðir liður í skemmtidagskrá gæsunar tilvonandi brúðarinnar.Vísir
„Það var farið í listflug, svo út að borða saman, farið í bubblubolta, trúbador mætti, alls konar myndbönd sýnd, æskumyndbönd sem vinkonur mínar voru búnar að búa til.“ Hún var einnig látin gera sig að fífli í miðbæ Reykjavíkur.

Um kvöldið var vinkonupartý þar sem Kolfinnu barst kveðja frá sjálfum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. „Hann sendi kveðju, fallega kveðju,“ segir Kolfinna sem vill ekkert tjá sig nánar um innihald kveðjunnar. Sigmundur mætti þó ekki sjálfur á staðinn en kveðjan var tekin upp á myndband og spiluð í gleðskapnum. Skemmtikrafturinn Maggi Mix sá svo um að gleðja Kolfinnu og vinkonur.

Maggi mix kannast vel við það að hafa verið að skemmta í téðu gæsapartíi. Og var þar með sitt hefðbundna prógramm sem alltaf fellur í góðan jarðveg:

„Það er náttúrlega þessi klassíska danskennsla, partídanskennsla, ekkert að vinna með vals eða svoleiðis, bara partí. kalla þetta alltaf pizzudansinn. Baka pizzu í þykjustunni, uppistand og syng. Er með partíleiki. Almennt grín og glens,“ sagði gleðigjafinn hinn hressasti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×