Innlent

Sigmundur Davíð segist hafa verið „afskaplega skýr“ um afstöðu sína

Bjarki Ármannsson skrifar
Forsætisráðherra gagnrýndi umræðu um flokk sinn í Reykjavík síðdegis í dag.
Forsætisráðherra gagnrýndi umræðu um flokk sinn í Reykjavík síðdegis í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að hann hafi verið mjög skýr í afstöðu sinni til byggingar mosku í Reykjavík en að litið hafi verið framhjá því. Hann segir umræðuna um moskuna hafi verið „fáránlega“ og ásakar Árna Pál Árnason, formann Samfylkingarinnar, um „lágkúrulega pólitík.“

Þetta sagði hann í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis fyrr í dag. Þar var hann meðal annars spurður út í það hvort hann væri sammála ummælum Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar í Reykjavík, um að afturkalla eigi lóð til byggingar mosku í Sogamýri.

Sigmundur hefur verið gagnrýndur undanfarið fyrir að skýra ekki hreint út hvort hann taki undir þessi umdeildu ummæli, en Sigmundur segir það af og frá.

„Umræðan er oft í litlum tengslum við raunveruleikann,“ segir Sigmundur. „Ég hef farið í nokkur viðtöl um þetta mál og verið afskaplega skýr í þeim öllum. Samt hefur bara verið litið framhjá því.

Ég sá frétt um daginn þar sem efnisinntakið var annars vegar það að ég hefði ekki sagt að flokkurinn væri ekki öfgaflokkur og hins vegar að verið væri að skora á formann Sjálfstæðisflokksins að slíta stjórnarsamstarfinu. Það hafði enginn talað við formann Sjálfstæðisflokksins um þetta mál og ég hafði verið eins skýr og mögulegt er í öllum viðtölum um fáránleika þessarar umræðu.“

Hann segir í kjölfarið að andstæðingar hans í pólitík hafi reynt að nýta sér moskumálið til þess að „upphefja sjálfa sig.“

„Jafnvel á yfirlætislegan hátt, eins og þegar formaður Samfylkingarinnar fer að tala við fólk eins og börn og segja: Það er skiljanlegt að fólk sé hrætt við það sem það skilur ekki, en ég get útskýrt þetta allt fyrir ykkur. Þetta er lágkúruleg pólitík, auðvitað. Hér er verið að fara með mjög alvarlegan hlut á léttvægan hátt, eða misnota hann, þegar menn nota hann til að koma höggi á andstæðinginn.

Talið barst einnig að opnun hans og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á Norðurá í morgun.

„Það er ekki ónýtt að byrja daginn á bílferð út í sveit,“ segir hann. „Mér finnst nú gaman að veiða þegar ég fæ tækifæri til þess. En ég get ekki kallað mig mikinn veiðimann.“

Hann er spurður út í ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrum forsætisráðherra, sem gagnrýndi þá Sigmund og Bjarna fyrir að þiggja boðið um að opna ána og sagði það stangast á við siðferðisreglur ráðherra.

„Ég hafði alveg húmor fyrir því, þetta var svo „retro.“ Maður hefur ekki heyrt í Jóhönnu í marga mánuði, svo heyrir hún orðið laxveiði og fer í gamla gírinn. Hún fór náttúrulega alveg yfir strikið, að halda því fram að þetta væri til marks um að menn hefðu enga siðferðiskennd.“


Tengdar fréttir

Enn þegir Sigmundur Davíð

Vaxandi óþol er gagnvart því að forysta Framsóknarflokksins taki ekki afgerandi um afstöðu til mjög svo umdeildrar afstöðu oddvita flokksins í Reykjavík sem túlkuð hefur verið sem andúð í garð innflytjenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×