Sigmundur Davíð fundaði með forsetanum Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. maí 2013 09:13
Það skýrist í dag hvernig næsta ríkisstjórn mun líta út og hvaða stefnumál verður lögð áhersla á. Dagurinn hófst klukkan níu þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hitti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Hann mun svo kynna stjórnarsáttmálann síðar í dag. Í kvöld verða svo þingflokksfundir flokkanna haldnir þar sem í ljós kemur hverjir gegna ráðherraembættum. Blaðamannafundur sem boðað hefur verið til að Laugarvatni klukkan 11:15 er í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi. Uppfært kl. 10:15 Á blaðamannafundi á Bessastöðum sagðist Ólafur Ragnar Grímsson vera glaður og ánægður með að Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki tækist á mynda ríkisstjórn á þetta þó skömmum tíma. Oft hafi þetta tekið lengri tíma. Þá sagðist forsetinn alltaf hafa verið bjartsýnn og lýsti yfir ánægju sinni með forsætisráðherraefnið. Á morgun klukkan 11:00 verður ríkisráðsfundur fráfarandi ríkisstjórnar á Bessastöðum. Strax á eftir hefst ríkisráðsfundur nýrrar ríkisstjórnar. Uppfært klukkan 9:45 Fundi þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, verðandi forsætisráðherra, er nú lokið. Þeir svöruðu báðir spurningum fréttamanna að loknum fundi. Sigmundur Davíð mætti á Bessastaði klukkan níu í morgun þar sem hann gerði forsetanum grein fyrir niðurstöðu stjórnarmyndunarviðræðna við Sjálfstæðisflokkinn. Hann heldur svo að Laugarvatni þar sem hann og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, munu kynna niðurstöðurnar fyrir almenningi. --------------------------------------------------------------Klukkan 9:13 hafði Sigmundur Davíð mætt á Bessastaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra, er mættur til fundar við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum. Þar mun hann gera forsetanum grein fyrir niðurstöðu stjórnarmyndunarviðræðna við Sjálfstæðisflokkinn. Að loknum fundi munu forsetinn og Sigmundur Davíð gera fjölmiðlum grein fyrir fundi sínum. Síðan heldur Sigmundur Davíð að Héraðsskólanum að Laugarvatni þar sem hann og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, munu kynna stjórnarsáttmálann.Horfa má á blaðamannafund Ólafs Ragnars og Sigmundar Davíðs hér að ofan.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira