Innlent

Sigmundur Davíð: Lausnin fólgin í samstöðu verkalýðsfélaga

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ríkisstjórnin mun ekki kasta eldiviði á verðbólgubál með inngripi inn í kjaraviðræður sem tryggi þær krónutöluhækkanir sem verkalýðshreyfingin hefur farið fram á, heldur stuðla að áframhaldandi verðmætasköpun ef aðilar vinnumarkaðarins ná saman um skynsamlega kjarasamninga. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. 

Áhrifa verkfalla gætir víða í samfélaginu. Uppnám er á fasteignamarkaði þar sem ekki hefur verið hægt að þinglýsa skjölum vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumannsembættum, læknismeðferðir krabbameinssjúkra á Landspítalanum hafa raskast alvarlega vegna verkfalls geislafræðinga og kjötskortur er í verslunum vegna verkfalls dýralækna. Til dæmis var enginn ferskur kjúklingur í mörgum verslunum um helgina.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna var málshefjandi í sérstakri umræðu um stöðuna á vinnumarkaði á Alþingi í dag. 

„Er ætlunin að ríkið skili auðu í þessari deilu þótt yfir standi verkfallsaðgerðir, svo umfangsmiklar að jafnmiklar höfum við ekki séð áratugum saman sem munu bitna bæði á almenningi og atvinnulífinu?“ spurði Katrín.

Ríkisstjórnin mun ekki kynda undir verðbólgubálið

„Ef atvinnurekendur og launþegar semja á þann hátt að það ógni ekki efnahagslífi þjóðarinnar, ýti undir verðbólgu og vegi að velferð í landinu, þá mun ríkisstjórnin geta lagt ýmislegt þar til málanna til að auka enn á ráðstöfunartekjur fólks. En ríkisstjórnin mun ekki kasta eldiviði eða spreki á verðbólgubál ef að menn, í stað þess að nýta tækifærin sem þeir standa frammi fyrir, gera verðbólgusamninga,“ sagði Sigmundur Davíð.

Forsætisráðherra segir að verkföllin komi upp við ótrúlega óvenjulegar aðstæður og vísar þar til kaupmáttaraukningar, hagvaxtar, verðmætasköpunar, lítils ójöfnuðar og lítillar verðbólgu hér á landi.

Krabbameinsmeðferðir hafa tafist vegna verkfalls geislafræðinga, það er uppnám á fasteignamarkaði og kjötskortur í verslunum. Hversu vond þarf staðan að verða svo ríkisstjórnin komi með inngrip áður en aðilar vinnumarkaðarins ná saman? „Inngrip ríkisstjórnarinnar áður en aðilar vinnumarkaðrins ná saman væri ekki til þess fallið að leysa málin því menn stæðu ennþá eftir með ógerða kjarasamninga. Hins vegar væri þá tryggt, eða nánast tryggt, að afleiðingin þegar aðilar næðu loksins saman yrði sú að verðbólgan færi á fullan skrið og menn myndu þurfa aftur að setjast að samningaborðinu við enn erfiðari aðstæður. (...) Lausnin hlýtur að felast í því að stéttarfélögin, fulltrúar launþega, nái saman þannig að þeir finni út úr málum sín á milli og finni út hvernig er hægt að skipta þessum ávinningi á sanngjarnan hátt og komi svo sameinaðir til borðsins,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í viðtali við Stöð 2.

Formaður SA vísar aðgerðaleysi á bug

Samtök atvinnulífsins hafa verið gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi í ljósi þeirrar eldfimu stöðu sem er uppi á vinnumarkaði en Björgólfur Jóhannsson formaður samtakanna vísar þessu á bug í bréfi til aðildarfélaga SA í dag. Þar segir Björgólfur að SA hafi viðrað hugmyndir um þriggja ára kjarasamning með verulegri hækkun lágmarkstekjutryggingar svo lægstu laun dugi betur til lágmarksframfærslu.

Þá hafi SA boðið verulega hlutfallshækkun launa ásamt sérstakri hækkun dagvinnulauna gegn því að samið yrði um aukinn sveigjanleika dagvinnutímabils og lækkun yfirvinnuálaga. Til samans hefðu þessar leiðir leitt til rúmlega 20% hækkunar dagvinnulauna á samningstímanum, að sögn Björgólfs. 


Tengdar fréttir

Formaður VR óttast lög á verkfallið

Formaður Samtaka atvinnulífsins segir að verkalýðshreyfingin geti knúið „hvaða vitleysu“ í gegn í krafti verkfalla sem hún kýs að gera.

Ísland verður vandræðaland

Langvarandi verkföll geta gert út af við ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Hótel og gistiheimili eru mjög viðkvæm fyrir verkfalli SGS sem hefst í vikunni. Miklar áhyggjur af langtímaáhrifum á ferðaþjónustu í landinu.

Viðræður komnar í strand

Rúmlega 10 þúsund manns hófu verkfall á landsbyggðinni á hádegi. Jákvæður fundur í morgun en viðræður komnar í strand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×