Innlent

Sigmundur Davíð fann knattspyrnugoðsögnina sem „afvopnaði tvo menn með kíttisspaða“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mark Duffield og Jón Óskar.
Mark Duffield og Jón Óskar. Mynd/Sigmundur Davíð
Mark Duffield, knattspyrnugoðsögn og héraðslögreglumaður á Siglufirði, kom að því að afvopna menn vegna ástands sem skapaðist við Hótel Sigló á Siglufirði í hádeginu í dag.

Þrír menn voru handteknir grunaðir um meðferð skotvopna en umrædd vopn reyndust síðar vera leikfangabyssur.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, oddviti Framsóknar á Norðurlandi Eystra, er á fullri ferð norðan heiða að ræða við kjósendur í aðdraganda kosninga og hitti fyrir þá Mark og Jón Óskar „vopnaða“ kíttisspaða og málningarbursta.

„Þetta var bara grín, þannig lagað,“ segir Mark um samtal þeirra Sigmundar Davíðs á Siglufirði í dag.

Hann segist hafa notað tækifæri og bent Sigmundi á fjársveltið þegar komi að lögreglunni úti á landi.


Sigmundur Davíð er á ferð og flugi eins og svo margir vegna kosninganna á laugardag.Vísir/Anton brink
Varð vitni að umsátrinu

Sigmundur Davíð varð vitni að því þegar lögreglumenn bar að garði en lögreglan í Fjallabyggð óskaði eftir liðsauka þegar málið kom upp. Þá lá ekki fyrir að mennirnir væru með leikfangabyssur og ástandið grafalvarlegt.

Mark segist ekkert geta tjáð sig um aðkomu sína að málinu en Sigmundur Davíð fullyrðir að Mark hafi afvopnað tvo menn með kíttisspaða einan að vopni, og svo haldið áfram að mála.

„Svona gera menn hlutina á Sigló,“ segir Sigmundur í færslu sinni. Vel fór á með þeim Sigmundi Davíð og Mark sem tóku upp Snapchöt en Sigmundur Davíð hefur farið nokkuð mikinn á samfélagsmiðlinum undanfarin misseri.



Mark er knattspyrnunnendum og -iðkendum á Íslandi vel þekktur enda spilaði hann í meistaraflokki í 27 ár og þjálfaði stelpur sem stráka norðan heiða. Hann segist enn spila fótbolta þegar hann geti en reyni að passa upp á líkamann.

„Ég æfi meira en áður en öðruvísi,“ segir Mark og ljóst að hann er sem fyrr í fantaformi. Því til stuðnings tók hann 1500 armbeygjur í dag, sem þykja reyndar engin tíðindi.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×