Innlent

Sigmundur Davíð á meðal ræðumanna Framsóknarflokksins í kvöld

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins. visir/vilhelm
Þingfundur verður á Alþingi klukkan 19:30 í kvöld en þá mælir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, fyrir stefnu ríkisstjórnar sinnar. Þrír þingmenn úr öllum flokkum taka til máls en athygli vekur að á meðal ræðumanna í kvöld er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Eins og kunnugt er var hann formaður flokksins þar til í september síðastliðnum þegar Sigurður Ingi Jóhannsson hafði betur í formannskjöri á flokksþingi. Sigurður Ingi var þá forsætisráðherra en hann hafði tekið því embætti í apríl í kjölfar þess að Sigmundur Davíð sagði af sér sem forsætisráðherra vegna uppljóstrana í Panama-skjölunum. Í útvarpsviðtali á Rás 1 í desember var Sigurður Ingi spurður út í samskipti sín við Sigmund Davíð og sagði þá að þau mættu vera betri.

Aðrir þingmenn Framsóknar sem taka til máls í kvöld eru Sigurður Ingi, sem tekur fyrstur til máls fyrir flokkinn, og Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins, sem talar í annarri umferð. Sigmundur tekur því til máls í þriðju umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala auk Bjarna þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar-, og nýsköðunarráðherra, og Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður.

Fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð taka til máls þau Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins, og þingmennirnir Ari Trausti Guðmundsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Fyrir Pírata tala þau Ásta Guðrún Helgadóttir, Björn Leví Gunnarsson og Viktor Orri Valgarðsson en hann er varaþingmaður fyrir Gunnar Hrafn Jónsson.

Fyrir Viðreisn taka til máls Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra og formaður flokksins, og þingmennirnir Hanna Katrín Friðriksson og Jóna Sólveig Elínardóttir sem jafnframt er varaformaður flokksins.

Fyrir Bjarta framtíð tala þau Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra og formaður flokksins, Björt Ólafsdóttir, umhverfis-og auðlindaráðherra, og þingmaðurinn Theodóra S. Þorsteinsdóttir.

Fyrir Samfylkinguna taka til máls Logi Már Einarsson, formaður flokksins, og þingmennirnir Oddný G. Harðardóttir og Guðjón S. Brjánsson.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 10 mínútur í fyrstu umferð, í annarri og þriðju umferð hafa þingflokkarnir 5 mínútur hver.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

 

Sjálfstæðisflokkur

Vinstri hreyfingin – grænt framboð

Píratar

Viðreisn

Framsóknarflokkur

Björt framtíð

Samfylking


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×