Innlent

Sigmundur Davíð: Gamla byggðin í Reykjavík aldrei staðið frammi fyrir jafn mikilli ógn

Heimir Már Pétursson og Jóhann Óli Eiðsson skrifa
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skrifar ítarlega grein um skipulag miðborgarinnar á heimasíðu sína í dag þar sem hann gagnrýnir harðlega hvernig staðið hefur verið að skipulagi miðborgarinnar undanfarin ár og þau áform sem uppi eru um byggingu nýrra húsa á svæðinu.

Forsætisráðherra segir sláandi að sjá þróun skipulagsmála og framkvæmda í miðborg Reykjavíkur þessa dagana. Líklega hafi gamli bærinn í Reykjavík ekki staðið frammi fyrir jafnmikilli ógn og nú frá því fyrir deiluna um Bernhöftstorfuna fyrir hátt í hálfri öld. Hann nefnir fyrirhugaða uppbyggingu á Hörpureitnum og lóðum við hlið Tollstjórahússins sem og lóð Íslandsbanka á horni Lækjargötu og Vonarstrætis sem dæmi um vont skipulag, ásamt ýmsum svæðum við Laugaveg, Hverfisgötu og í Þingholtum.

„Ástæðan fyrir því að gamla byggðin í Reykjavík hefur líklega aldrei staðið frammi fyrir jafnmikilli ógn og nú er sú staðreynd að nú fara saman skeytingarleysi, stundum jafnvel andúð á því litla og gamla, og blind dýrkun á hinu nýja og stóra á sama tíma og ekki skortir fjármagn til að raungera það viðhorf. Allt er svo rökstutt með gömlum öfugmælum á borð við „borgir mega ekki staðna“ eða að miðbærinn megi ekki vera einhvers konar Disneyland.“

Forsætisráðherra segir að sem betur fer hafi verið horfið frá ýmsum byggingaráformum eftir efnahagshrunið og um tíma hafi virst vora á ný í skipulagsmálum og nefnir nokkur dæmi um þar sem vel hafi verið staðið að málum.

Mögulega nauðsynlegt að grípa inn í

Hins vegar hafi sá möguleiki sem skapaðist eftir hrun ekki verið nýttur. Nú blasi við að vorið breyttist skyndilega í ótíð. Ástæðan fyrir því að gamla byggðin í Reykjavík hafi líklega aldrei staðið frammi fyrir jafnmikilli ógn og sé sú staðreynd að nú fari saman skeytingarleysi, stundum jafnvel andúð á því litla og gamla og blind dýrkun á hinu nýja og stóra á sama tíma og ekki skorti fjármagn til að raungera það viðhorf.

Sigmundur Davíð líkur ástandinu nú við skipulag Reykjavíkur frá árinu 1960 þegar til hafi staðið að rífa stóran hluta gamalla húsa í miðborginni og byggja þar steinkassa í staðinn. Hann segir sérstöðu Reykjavíkur felast í litlum timburhúsum og ferðamenn sækist ekki í að sjá sama byggingarstílinn á íslandi og í helstu stórborgum heimsins.

Forsætisráðherra segir Íslendingar eiga minnst allra Evrópuþjóða af byggingarsögu og eigi því að varðveita það sem þeir eigi og virða gamla stílinn við uppbyggingu miðborgarinnar en ekki byggja steinkassana annars staðar.

„Það er hlutverk borgaryfirvalda að leggja línurnar í skipulagsmálum á þann hátt að það skapi jákvæða hvata en ekki neikvæða, ýti undir fegrun umhverfisins og vernd menningararfsins, þess sem tengir okkur við sögu borgarinnar og gerir gamla bæinn að sérstæðum og aðlaðandi stað. [...] Ef borgaryfirvöld vanrækja það hlutverk þarf þar til gerð stofnun að grípa inn í á sama hátt og fjármálaeftirlitið á að passa upp á að menn fari ekki út af sporinu á fjármálamarkaði og heilbrigðiseftirlit fylgist með því að matur og umhverfi séu ekki hættuleg,“ segir Sigmundur í niðurlagi greinarinnar. 

Greiningu Sigmundar má lesa í heild sinni inn á heimasíðu hans


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×