Innlent

Siglufjarðarvegur enn lokaður

Gissur Sigurðsson skrifar
Gríðarlegt úrhelli var á Norður- og Austurlandi í síðustu viku.
Gríðarlegt úrhelli var á Norður- og Austurlandi í síðustu viku. MYND/ANDRI FREYR SVEINSSON
Siglufjarðarvegur á milli Skagafjarðar og Siglufjarðar er enn lokaður eftir að aurskriður féllu á hann fyrir helgi. Vegagerðarmenn beita stórvirkum tækjum við hreinsun vegarins og liggur ekki fyrir hvenær hann verður fær á ný.

Það er hinsvegar búið að opna veginn norðan Bjarnarfjarðar á Ströndum en vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát. Ekki er enn búið að meta tjónið sem varð vegna flóða á Siglufirði á föstudag, en ljóst er að það hleypur á mörgum tugum milljóna króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×