Innlent

Siggi Stormur leiðir Miðflokkinn í Hafnarfirði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Efstu sex sæti listans stilltu sér upp fyrir mynd í gær.
Efstu sex sæti listans stilltu sér upp fyrir mynd í gær. Miðflokkurinn
Veður- og jarðvísindamaðurinn Sigurður Þ. Ragnarsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði. Almennur félagsfundur flokksins samþykkti í gærkvöldi tillögu uppstillinganefndar um framboðslista Miðflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði 26. maí næstkomandi.

Í öðru sæti listans er grunnskólakennarinn Bjarney Grendal Jóhannesdóttir en heildarlistann má nálgast hér að neðan.

Haft er eftir Sigurði í tilkynningu, sem alla jafna gengur undir viðurnefninu Stormur, að Miðflokkurinn sé stoltur af lista sínum í Hafnarfirði.

„Við leggjum höfuðáherslu á að finna skynsamlegar lausnir á þeim áskorunum sem Hafnarfjarðarbær stendur frammi fyrir og viljum fá bæjarbúa og önnur framboð með okkur í uppbyggilega rökræðu um þær. Við göngum því óbundin til kosninganna í vor en erum tilbúin að starfa með öllum sem vilja vinna með okkur að skynsamlegum málum sem bæta hag bæjarbúa. Við munum alltaf setja málefnin í forgang og hlökkum til að kynna stefnumál okkar á næstu vikum,“ segir Sigurður í tilkynningunni.

Lista flokksins í Hafnarfirði má sjá hér að neðan.

 

1

Sigurður Þ. Ragnarsson

Náttúruvísindamaður

2

Bjarney Grendal Jóhannesdóttir

Grunnskólakennari

3

Jónas Henning

Fjárfestir

4

Gísli Sveinbergsson

Málarameistari

5

Arnhildur Ásdís Kolbeins

Viðskiptafræðingur

6

Elínbjörg Ingólfsdóttir

Öryggisvörður

7

Ingvar Sigurðsson

Framkvæmdastjóri

8

Magnús Pálsson

Málarameistari

9

Sævar Gíslason

Iðnfræðingur

10

Ásdís Gunnarsdóttir

Sjúkraliði

11

Davíð Gígja

Sjómaður

12

Bjarni Bergþór Eiríksson

Sjómaður

13

Sigurður F. Kristjánsson

Kjötiðnaðarmaður

14

Haraldur J Baldursson

Véltæknifræðingur

15

Skúli Alexandersson

Bílstjóri

16

Rósalind Guðmundsdóttir

Viðskiptafræðingur

17

Árni Guðbjartsson

 
18

Guðmundur Snorri Sigurðsson

Bifvélavirkjameistari

19

Tómas Sigurðsson

Rekstrarstjóri

20

Árni Þórður Sigurðarson

Tollvörður

21

Kristinn Jónsson

Skrifstofumaður

22

Nanna Hálfdánardóttir

Frumkvöðull




Fleiri fréttir

Sjá meira


×