Lífið

Sigga Lund rennblaut í sveitinni

Ellý Ármanns skrifar
mynd/youtube
Sigga Lund útvarpskonan geðþekka sem býr nú á Vaðbrekku í Jökuldal með kærasta sínum þar sem hún tekst nú á við ný ævintýri sem fjárbóndi tók ísfötuáskoruninni eins og svo margir aðrir.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar traktor sturtar yfir Siggu ísköldu vatni úr jökulánni í nágrenninu en Sigga átti enga klaka til eins og hún útskýrir í myndskeiðinu. 

„Það var skorað mig í „The Ice-bucket challence" ...ég skorast að sjálfsögðu ekki undan! Ég skora á engan en hvet alla að styrkja Mnd og kynna sèr starfsemina à mnd.is," voru skilaboð Siggu með myndskeiðinu sem sjá má hér:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×