Fótbolti

Sif og Elísabet í bullandi fallhættu í Svíþjóð

Sif lék allan tímann í vörn Kristianstad sem tapaði gegn Piteå.
Sif lék allan tímann í vörn Kristianstad sem tapaði gegn Piteå. Vísir/getty
Sif Atladóttir lék allan leikinn í vörn Kristianstad sem tapaði 2-1 fyrir Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad sem er í harðri fallbaráttu. Fyrir leikinn voru þær jafnar liði Mallbackens sem situr í fallsæti með 13 stig en Kristianstad er með betri markatölu. Umeå er svo tveimur stigum á eftir í neðsta sætinu.

Piteå komst yfir á 40.mínútu og staðan í hálfleik var 1-0. Kristianstad jafnaði eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik þegar leikmaður Piteå varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan því jöfn.

Jafntefli hefði gefið Kristianstad mikilvægt stig í fallbaráttunni en því miður fyrir þær tókst Piteå að tryggja sér sigur í leiknum á 66.mínútu þegar Nina Jakobsson skoraði sigurmarkið.

Lið Kristianstad er jafnt Mallbacken að stigum þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni. Umeå er tveimur stigum á eftir í neðsta sætinu en Kristianstad mætir einmitt Umeå á heimavelli í síðustu umferðinni þann 5.nóvember. Það gæti orðið úrslitaleikur um sæti í efstu deild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×