Sport

Síðustu silfurdrengirnir okkar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Strákarnir okkar fagna sögulegu silfri í Peking 2008.
Strákarnir okkar fagna sögulegu silfri í Peking 2008. vísir/vilhelm
Íslenska handboltalandsliðið öðlaðist heimsfrægð í ágústmánuði 2008 þegar liðið komst alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Peking. Strákarnir töpuðu leiknum reyndar en silfurdrengirnir okkar stimpluðu sig inn sem gullkynslóð íslenska handboltans með árangri sínum.

Þetta er fyrsta og eina kynslóðin sem hefur unnið verðlaun á stórmóti og kynslóðin sem hélt íslenska landsliðinu í hópi þeirra bestu í mjög langan tíma. Það hefur smám saman tínst úr hópnum og á síðustu dögum hafa þrír lykilmenn liðsins horfið á braut.

Þegar landsliðið kemur saman á næstu dögum verða bara fjórir eftir af leikmönnunum sem tóku þátt í þessum sögulega úrslitaleik í Peking 2008. Leikmennirnir eru Björgvin Páll Gústavsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason.

Síðasta vika var stór fréttavika fyrir gullskynslóðina enda byrjaði vikan á því að Alexander Petersson kvaddi liðið, síðan missti það markahæsta leikstjórnanda sögunnar, Snorra Stein Guðjónsson, og loks var markahæsti línumaður landsliðsins frá upphafi, Róbert Gunnarsson, ekki valinn í liðið.

graf/fréttablaðið
Fyrstu skrefin tekin

Fyrstu skrefin að gullkynslóðinni voru tekin þegar Guðmundur Guðmundsson tók við landsliðinu 2001 og íslenska liðið komast í undanúrslit á EM í Svíþjóð árið eftir. Guðmundur kom síðan íslenska liðinu inn á sína fyrstu Ólympíuleika í tólf ár í Aþenu 2004. Liðið náði sér ekki á strik þar og mikil endurnýjun varð á liðinu undir stjórn Viggós Sigurðssonar frá 2005 til 2006.

Íslenska liðið sýndi mátt sinn í stórsigri á Frökkum undir stjórn Alfreðs Gíslasonar á HM í Þýskalandi þar sem liðið var aðeins hársbreidd frá því að leika um verðlaun. Guðmundur fékk íslenska liðið aftur í hendurnar fyrir ÓL 2008 og næstu fjögur ár á eftir voru söguleg.

Íslenska liðið vann silfur í Peking og svo brons á EM í Austurríki 2010. Liðið var einnig í hóp sex bestu á HM í Svíþjóð 2011 og vann síðan alla leiki sína í riðlakeppni Ólympíu­leikanna í London 2012 áður en strákarnir þurftu að sætta við sárgrætilegt tap fyrir Ungverjum í átta liða úrslitunum.

„Snobbi“ er horfinn á braut.vísir/vilhelm
Alltaf á stórmótum

Á árunum eftir Ól­ympíu­leikana í London 2012 hefur íslenska liðið haldið sér inni á stórmótum og náði meðal annars 5. sætinu á EM 2014. Liðið náði því á árunum 2008 til 2012 að enda á topp tíu á fimm stórmótum í röð. Slakt gengi á HM 2013 og áfallið á EM í Póllandi í fyrra hefur hins vegar hækkað þær raddir sem kalla á kynslóðaskipti.

Fáir ungir leikmenn hafa komist í lykilhlutverk í liðinu á þessum tímamótaárum fyrir utan Aron Pálmarsson sem var nánast orðinn lykilmaður um leið og hann klæddist landsliðsbúningnum. Aðrir hafa ekki verið mikil viðbót við liðið og fyrir vikið hefur það verið á herðum gullkynslóðarinnar að halda uppi landsliðinu í langan tíma.

Það má þó ekki líta fram hjá því að ungu strákarnir eru ekki að reyna að slá neina venjulega leikmenn út enda eru leikmenn gullkynslóðarinnar flestir í hópi bestu landsliðsmanna sögunnar í sinni stöðu. Kynslóðaskiptin hafa því dregist á langinn en landsliðið á erfitt með að fresta þeim mikið lengur. Fráhvarf Snorra Steins og Alexanders, tveggja af bestu leikmönnum liðsins í meira en áratug, eru stór tímamót.

Á síðustu árum hefur það nánast þótt sjálfsagður hlutur að íslenska liðið væri ekki bara með á stórmótum heldur stefndi inn í hóp bestu liða mótsins. Liðið er búið að missa mikla reynslu og mikla þekkingu með brotthvarfi lykilmanna gullkynslóðarinnar en nú er það hlutverk nýrrar kynslóðar að halda Íslandi í hópi bestu handboltaþjóða heims. Yngri strákarnir njóta enn leiðsagnar sterkra karaktera eins og þeirra Guðjóns Vals, Björgvins Páls, Arnórs og Ásgeirs.


Tengdar fréttir

Snorri Steinn hættur í íslenska landsliðinu

Snorri Steinn Guðjónsson, aðalleikstjórnandi íslenska handboltalandsliðsins í meira en áratug, hefur ákveðið að gefa ekki lengur kost á sér í íslenska A-landsliðið í handbolta. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið enda hefur Snorri stýrt sóknarleik liðsins í gegnum blómatíma þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×