Sport

Síðasta helgin í steininum hjá Pistorius

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Oscar Pistorius.
Oscar Pistorius. vísir/getty
Fangelsistíma Oscar Pistorius fer að ljúka en hann losnar úr steininum eftir helgi.

Hann er þó ekki frjáls maður því hann fer í svokallað húsfangelsi. Hann mun þá búa hjá frænda sínum í glæsilegu húsi.

Pistorius var dæmdur í fimm ára fangelsi í fyrra fyrir að myrða unnustu sína, Reevu Steenkamp. Hann var fundinn sekur um manndráp.

Hann er búinn að afplána rúmt ár í steininum og átti í fyrstu að losna út í ágúst. Því var breytt á elleftu stundu.

Pistorius á því aðeins fjórar nætur eftir í steininum og svo getur hann andað að sér fersku lofti á nýjan leik.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×