Íslenski boltinn

Síðast þegar Víkingur vann í Keflavík fékk liðið tvö stig

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Denis Cardaclija stóð vaktina í markinu og Davíð Örn Atlason skoraði eitt og lagði upp annað.
Denis Cardaclija stóð vaktina í markinu og Davíð Örn Atlason skoraði eitt og lagði upp annað. vísir/ernir
Víkingur vann Keflavík, 3-1, í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta í gær, en mörk liðsins skoruðu Davíð Örn Atlason, Igor Taskovic og Ívar Örn Jónsson.

Þetta er fyrsti sigur Víkinga á Keflavík suður með sjó í 32 ár, en síðast unnu Víkingar lið Keflavíkur, eða ÍBK, á útivelli 13. ágúst 1983.

Þórður Marelsson og Ólafur Ólafsson, núverandi íþróttastjóri Víkings og þjálfari 2. flokks félagsins, skoruðu mörk Víkinga í þeim leik en Óli Þór Magnússon mark Keflavíkur.

Fyrir þann sigur fengu Víkingar aðeins tvö stig, en þriggja stiga reglan var ekki tekin upp fyrir en ári síðar. Víkingar höfðu því fyrir gærkvöldið aldrei fengið þrjú stig í Keflavík.

Víkingar voru ríkjandi meistarar eftir að vinna 1. deildina annað árið í röð 1982, en þetta tímabil var liðið í harðri fallbaráttu og var stigi frá því að falla niður um deild.

Keflavík hefur haft gott tak á Víkingum á heimavelli sínum og vann ellefu heimaleiki í röð í efstu og næstefstu deild gegn Víkingum áður en kom að tapinu í gær.

Síðustu 13 leikir Keflavíkur og Víkings í Keflavík:

04.10.14: Keflavík - Víkingur 2-0

11.07.11: Keflavík - Víkingur 2-1

16.09.07: Keflavík - Víkingur 0-0

19.05.06: Keflavík - Víkingur 2-1

07.06.04: Keflavík - Víkingur 1-0

13.09.03: Keflavík - Víkingur 0-0

22.07.99: Keflavík - Víkingur 3-2

25.09.93: Keflavík - Víkingur 3-2

02.09.89: Keflavík - Víkingur 3-2

24.09.88: Keflavík - Víkingur 3-1

07.07.85: Keflavík - Víkingur 3-1

01.07.84: Keflavík - Víkingur 3-1

13.08.83: Keflavík - Víkingur 1-2

Grein úr DV um sigur Víkings í Keflavík 1983.mynd/tímarit.is

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×