Innlent

Síbrotamenn hjá danska póstinum

Íslensku börnin í Danmörku sem Vísir sagði frá í dag og fengu páskaeggin sín mölbrotin eftir meðferð póstsins eru ekki þau einu sem þurfa að gera sér brotin egg að góðu þessa páska. Nokkrir hafa haft samband við fréttastofu með sömu sögu að segja.

Annar afi sem hafði samband ætlaði að gleðja barnabörnin sín sem einnig búa í Danmörku. Hann var á leið til Oslóar og ákvað því að senda eggin þaðan. Þrjú dýryndis egg frá Nóa fóru í pakkann og var sérstaklega vandað til verka við innpökkunina og hefðu þau átt að komast klakklaust á leiðarenda.

Dönsk tollayfirvöld eru þó greinilega á því að páskaegg séu vinsæl smyglleið eiturlyfjasmyglara því eins fór um þessi egg og þau sem sagt var frá í dag, þau voru mölbrotin þegar börnin tóku upp pakkann. „Mega dönsk tollayfirvöld virkilega skammast sín því nútímatækni ræður við að kanna slíka vöru," segir afinn. Móðirinn ætlar hinsvegar að hafa samband við danska póstinn og kvarta formlega yfir meðferðinni á eggjunum.


Tengdar fréttir

Páskaeggin brotnuðu öll á leið til Danmerkur

Íslenskur afi sem ætlaði að senda páskaegg til barnabarna sinna í Danmörku segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við danska póstinn. Hann sendi átta páskaegg til Esbjerg í síðustu viku en þegar þau komust á leiðarenda voru þau öll brotin nema eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×