Lífið

Sharon Osbourne verður í dómarateyminu í X-Factor

Stefán Árni Pálsson skrifar
Louis Walsh, Sharon Osbourne og Cowell árið 2007.
Louis Walsh, Sharon Osbourne og Cowell árið 2007. vísir/getty
Simon Cowell hefur nú staðfest að Sharon Osbourne verði dómari á nýjan leik í raunveruleikaþáttunum X-Factor Uk en hún var hluti af upprunalegu dómurunum í þáttunum sem hófu göngu sína árið 2004.

Cowell mun einnig vera að vinna í því að fá Louis Walsh aftur í dómarateymið.  Osbourne og Cowell hafa í gegnum tíðina ekki verið góðir vinir og hafði hún áður sagt í fjölmiðlum að hún myndi aldrei aftur vinna með Simon Cowell.

Í síðustu þáttaröð voru þau Rita Ora og útvarpsmaðurinn Nick Grimshaw í dómarateyminu en nú er orðið ljóst að þau verða ekki aftur. Þátturinn fékk ekki gott áhorf í Bretlandi í vetur og hefur hann aldrei mælst með minna áhorf. Nú á að fara aftur í gamla farið og sjá svo til hvernig til tekst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×