Sport

Sharapova snýr aftur eftir lyfjabannið: „Komin með dagvinnuna mína aftur“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Maria Sharapova kemur til baka í apríl.
Maria Sharapova kemur til baka í apríl. vísir/getty
Rússneska tennisdrottningin Maria Sharapova sem dæmd var í tveggja ára bann vegna lyfjamisnotkunar í júní á síðasta ári snýr aftur á völlinn í lok mánaðar þegar hún keppir á Porsche Grand Prix-mótinu.

Sharapova, sem hefur fimm sinnum unnið risamót á ferlinum, fékk svokallað „wildcard“-sæti á mótinu þar sem hún vann sér augljóslega ekki inn sæti. Lyfjabann hennar tekur ekki enda fyrr en 26. apríl.

Mótið sjálft hefst 24. apríl en hún má ekki mæta á svæðið fyrr en hún á sjálf leik tveimur dögum síðar vegna bannsins. Það var upphaflega tvö ár en íþróttadómstóllinn stytti bannið. Hún hefur í heildina verið frá keppni í fimmtán mánuði.

„Ég er komin með dagvinnuna mína aftur. Það er frábært. Ég er búin að æfa mikið síðustu mánuði,“ segir Sharapova sem spilaði síðast á opna ástralska meistaramótinu í fyrra en þar féll hún á lyfjaprófi.

Lyfið Meldóníum fannst í sýni Sharapovu en hún var búin að nota það í mörg ár. Sú rússneska sagðist ekki vita að því hefði verið bætt á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins í byrjun árs 2016.

Það var vegna þess sem íþróttadómstóllinn stytti bannið hennar en þar fannst mönnum að hún hefði ekki verið að misnota Meldóníum viljandi.

„Ég barðist svo hart fyrir sannleikanum. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvernig það er að missa eitthvað sem þið hafið elskað svona lengi,“ segir Maria Sharapova sem er einnig með „wildcard“-sæti á mót í Madríd og Róm í maí.


Tengdar fréttir

Bann Sharapovu stytt

Íþróttadómstóllinn í Sviss hefur tekið fyrir mál tenniskonunnar Mariu Sharapovu og úrskurðaði í dag.

Sharapova í Ólympíuliði Rússa

Maria Sharapova hefur verið valin í tennislið Rússa á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst þrátt fyrir að hún sé í keppnisbanni vegna lyfjamisferlis.

Sharapova dæmd í tveggja ára bann

Rússneska tennisstjarnan Maria Sharapova hefur verið dæmd í tveggja ára keppnisbann af Alþjóðatennissambandinu eftir að hún féll á lyfjaprófi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×