Sport

Sharapova féll á lyfjaprófi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maria Sharapova.
Maria Sharapova. vísir/getty
Tennisdrottningin Maria Sharapova greindi frá því í kvöld að hún hefði fallið á lyfjaprófi.

Prófið sem felldi hana var tekið á opna ástralska mótinu í janúar. Efnið meldonium fannst í henni.

Sharapova er ein vinsælasta tenniskona hems og hefur unnið fimm risamót á ferlinum.

Lyfið sem felldi hana var sett á bannlista um áramótin. Hún segist hafa tekið þetta lyf löglega í tíu ár.

„Ég gerði stór mistök og vil ekki enda ferilinn svona,“ sagði Sharapova á blaðamannafundi sínum áðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×