Lífið

Shakira ólétt aftur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Shakira á von á sínu öðru barni með fótboltakappanum Gerard Pique. Þetta er staðfest í spænska Cosmopolitan.

Shakira og Gerard kynntust þegar hún var að kynna lagið Waka Waka (This Time For Africa), lag heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu árið 2010.

Þau eignuðust frumburðinn Milan, átján mánaða, í janúar í fyrra.

Shakira hefur talað opinskátt um það að hún vilji eignast stóra fjölskyldu.

„Ég væri ólétt aftur ef væri ekki fyrir verkefni mín í tónlist. Mig langar að eignast átta eða níu börn með Gerard - mitt eigið fótboltalið,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Latina í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×