Menning

Shakespeare stenst tímans tönn

Birta Björnsdóttir skrifar
William Shakespeare lést þann 23. apríl árið 1616, þá 52 ára að aldri. Eftir hann liggja hátt í 40 leikverk sem enn eru sett upp um heim allan og hafa verið innblástur fjölda kvikmynda, en þeirra þekktust eru líklega Hamlet, Rómeó og Júlía, Lér konungur og Mackbeth.

Margar af skærustu stjörnum Bretlands tóku þátt í að minnast leikskáldsins í fjölbreyttri dagskrá í Bretlandi í dag, meðal annars í konunglega Shakespeare-leikhúsinu í Stratford-upon-Avon og í Breska ríkissjónvarpinu.

Þá var ítarleg sýning um ævi og feril skáldsins opnuð í British Library.

Barack Obama Bandaríkjaforseti, sem staddur er í London, heimsótti Globe leikhúsið í tilefni dagsins þar sem hann hlýddi á stuttan bút úr leikverkinu Hamlet.

Og tímamótanna var ekki bara minnst í Bretlandi, í Krónborgarkastala í Helsingör í Danmörku stóðu einnig til umtalsverð hátíðahöld í dag, en kastalinn var fyrirmynd Elsinore kastalans, híbýla Hamlets danaprins.

Það er svo líklega tákn nýrra tíma að Shakespeare-smáforrit er nú orðið að veruleika, þar sem upplestur allra 37 leikrita skáldsins verður á endanum aðgengilegur notendum.

„Shakespeare stenst tímans tönn og á alltaf við. Hann hafði sérstaka náðargáfu í að skilja okkur öll og mannlegt eðli. Það er eins og Shakespeare hafi fundið sjálfur upp á manneskjunni," sagði leikarinn Ian McKellan, sem er einn þeirra sem les verk Shakespeares í smáforritinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×