Lífið

Shady Owens syngur inn á plötu Dr. Gunna

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Shady Owens og Dr. Gunni áttu góð stund á Íslandi en hún hefur ekki sungið inn á íslenska hljómplötu í fjölmörg ár.
Shady Owens og Dr. Gunni áttu góð stund á Íslandi en hún hefur ekki sungið inn á íslenska hljómplötu í fjölmörg ár.
Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, vinnur nú að nýrri plötu, en það er þó engin önnur en söngkonan Shady Owens sem syngur eitt lag á plötunni. „Ég held að Shady hafi örugglega ekki sungið inn á plötu hér á Íslandi síðan hún var í Náttúru, eða allavega í mjög langan tíma,“ segir Gunni en nýja platan er unnin í tilefni þess að hann fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í október.

„Platan heitir 7. október og á að koma út þá, enda er það afmælisdagurinn minn,“ segir Gunni léttur í lundu. Platan kemur út á tvenns konar útgáfum, annars vegar á kassettu og hins vegar á tíu tommu plötu.

Doktorinn segir ástæðuna fyrir því að hann hafi fengið Shady til þess að syngja á plötunni vera einfalda. „Hún var stödd á landinu vegna annarra verkefna sem ég er að vinna og það var því alveg kjörið að nýta tækifærið fyrst hún var hér,“ segir Dr. Gunni spurður út í samstarfið.

Shady Owens, sem er nú búsett í London, er líklega best þekkt fyrir söng sinn með hljómsveitum á borð við Óðmenn, Hljóma, Trúbrot og Náttúru.

Lögin á plötunni eru öll samin af Gunnari sjálfum og alla textana orti hann sjálfur nema einn. „Það er einn texti þarna sem er eftir Þorstein Eggertsson. Reyndar er eitt lag þarna eftir óþekktan götusala í New York en það er bara tólf sekúndna langt,“ segir Gunni og hlær.

Farið er um víðan völl á plötunni, enda hefur Doktorinn búið til alls kyns tónlist á sínum langa ferli. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég geri allt á einni plötu. Þarna er allt frá barnamúsík sem fjallar um gúmmíönd yfir í hávaðapönk og allt þar á milli.“

Ásamt Shady Owens er fleiri gestasöngvara að finna á plötunni en Doktorinn vill þó ekki gefa of mikið upp að svo stöddu. „Dj. flugvél og geimskip syngur á plötunni en ég get ekki gefið upp fleiri nöfn núna,“ bætir Gunni við og glottir.

Inn á plötuna leikur hljómsveit sem skipuð er þeim Grími Atlasyni bassaleikara, Guðmundi Birgi Halldórssyni gítarleikara og Kristjáni Frey Halldórssyni trommuleikara en þeir mynda hljómsveit sem heitir einfaldlega Dr. Gunni. Sú sveit ætlar að koma fram á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi sem fram fer á Neskaupstað dagana 8.-11. júlí. „Við ætlum að spila bestu lög ferilsins og rokka af okkur sokkana.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×