Innlent

Sextíu þúsund hafa sótt um lækkun húsnæðislána

Bjarki Ármannsson skrifar
Tryggvi Þór Herbertsson.
Tryggvi Þór Herbertsson. Vísir/Anton
Tæplega sextíu þúsund manns hafa nú sótt um lækkun höfuðstóls húsnæðislána, en umsóknarfrestur rennur út á mánudag, 1. september. Um sautján þúsund til viðbótar hafa sótt um að nota séreignarsparnað til niðurfærslu lána og aðrar tíu þúsund umsóknir eru í vinnslu hjá fólki en þeim hefur ekki verið skilað inn.

„Við bjuggumst alveg eins við þessum fjölda umsókna eins og öðru, við renndum svolítið blint í sjóinn með þetta,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður og verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar húsnæðislána. Gert var ráð fyrir um 92 prósent þátttöku þeirra sem gætu sótt um en hlutfallið er nú komið í um 86 prósent.

Aðgerðir um lækkun höfuðstóls húsnæðisskulda eru þær umfangsmestu sem sitjandi ríkisstjórn hefur ráðist í. Fresturinn til að sækja um hefur verið auglýstur sérstaklega undanfarið, bæði í fjölmiðlum og hjá bönkum, og segir Tryggvi að umsóknirnar hrannist nú inn í kjölfarið.

„Það er mjög mikið að gera núna, gríðarlega mikið,“ segir hann. „Á mánudaginn tekur við að reikna þetta alltsaman út, fara yfir allar umsóknir og svoleiðis. Við miðum við að kannski um mánaðamótin september, október verði hægt að birta niðurstöðurnar. Þá þarf fólk að samþykkja útreikninga og ráðstöfun og lagalegur frestur til þess er þrír mánuðir.“

Þó fresturinn til að sækja um höfuðstólslækkunina renni út nú eftir tæpa viku er hægt að sækju um að nýta séreignarsparnað sinn til niðurfærslu lána hvenær sem er næstu þrjú árin.

„En þar er aftur á móti rétt að hvetja fólk til að sækja um fyrir fyrsta september, til þess að geta fullnýtt bæði júlí- og ágústgreiðsluna,“ segir Tryggvi Þór.


Tengdar fréttir

20 þúsund nota séreignina í íbúðalán

Nær þrettán þúsund manns hafa sótt um að greiða séreignarsparnað inn á fasteignalán. Sjö þúsund eru í ferli. 70 þúsund manns vilja fá verðtryggð lán leiðrétt.

Ráðstöfun séreignarsparnaðar gagnast ekki öllum

"Þeir sem standa tæpt fjárhagslega og eiga hættu á að fara í gjaldþrot, til dæmis þeir sem búa við mikla áhættu, atvinnurekendur með sjálfskuldaábyrgðir og annað slíkt, við ráðleggjum þeim ekki að sækja um. Ef fólk fer í gjaldþrot þá missir það allt sem það hefur lagt í þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×