Innlent

Sextán plöntur tilbúnar í húsi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Humarhátíðinni lauk á sunnudag.
Humarhátíðinni lauk á sunnudag. vísir/pjetur
Grunur lögreglu um fíkniefnaræktun í íbúðarhúsi á Höfn í Hornafirði var staðfestur með húsleit á laugardag.

Sextán kannabisplöntur tilbúnar til niðurskurðar og vinnslu fundust í íbúðinni. Umráðamaður íbúðarinnar gekkst við ræktuninni.

Buster, fíkniefnahundur lögreglunnar og þjálfari hans, voru við fíkniefnaeftirlit á Humarhátíðinni á Höfn um helgina en engin fíkniefni fundust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×