Handbolti

Sextán íslensk mörk í sigri Eisenach

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Bjarki fór mikinn í upphafi leiks
Bjarki fór mikinn í upphafi leiks mynd/eisenach
Hannes Jón Jónsson og Bjarki Már Elísson léku vel þegar Eisenach lagði Empor Rostock 36-25 í þýsku fyrstu deildinni í handbolta í dag. Á sama tíma gerði Gummersbach jafntefli við Hamburg í úrvalsdeildinni.

Gunnar Steinn Jónsson lék sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni fyrir Gummersbach sem gerði jafntefli 27-27 við Hamburg. Gunnar Steinn skoraði eitt mark í leiknum.

Hannes Jón fór á kostum og var markahæstur með 10 mörk hjá Eisenach sem vann öruggan sigur undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar í dag. Bjarki Már skoraði sex mörk, öll snemma í leiknum.

Eisenach féll úr úrvalsdeildinni í vor og ætlar sér ekkert annað en að fara beint upp aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×