Erlent

Sextán handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu í Brussel

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá aðgerðum lögreglu í Brussel í kvöld.
Frá aðgerðum lögreglu í Brussel í kvöld. Vísir/Getty
Belgíska lögreglan handtók sextán manns í umfangsmiklum aðgerðum sem staðið hafa yfir í Brussel, nágrenni belgísku höfuðborgarinnar og víðar í Belgíu í kvöld. Sala Abdeslam, sem talinn er lykilmaður í hryðjuverkunum í París fyrir rúmri viku, gengur enn laus.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem belgíski saksóknarinn Eric van der Sypt boðaði til klukkan 23:30 að íslenskum tíma í kvöld. Mikil leynd hefur hvílt yfir aðgerðum lögreglu og var farið fram á að fjölmiðlar hefðu sig lítið í frammi í kvöld og sömuleiðis notendur samfélagsmiðla á meðan á aðgerðunum stæði.

Blaðamönnum gafst ekki kostur á að spyrja saksóknara út í atburði kvöldsins en fram kom í máli saksóknara að á morgun komi í ljós hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum sextán eða hluta þeirra. Engar upplýsingar voru gefnar um hverjir hinir sextán væru.

Nítján húsleitir fóru fram í Brussel og nágrenni í kvöld og þrjár til viðbótar í borginni Charleroi. Hvorki fundust skotvopn né sprengiefni við leit lögreglu að því er fram kom í máli saksóknarans.

Að neðan má sjá mynd frá blaðamannafundinum í Brussel í kvöld.

Særðu ökumann

Lögregla særði ökumann sem sinnti ekki skipunum í Molenbeek hverfinu í kvöld. Hann var handtekinn en ekki liggur fyrir hvort maðurinn tengist aðgerðum lögreglu er snúa að yfirvofandi hryðjuverkaógn í Evrópu. Getgátur voru uppi í miðlum ytra að Sala Abdeslam hefði mögulega verið handtekinn í kvöld en saksóknari staðfesti að svo væri ekki. Hann gengi enn laus.

Yfirvöld í Belgíu lýstu yfir hæsta viðbúnaðarstigi í borginni í kvöld og hefur forsætisráðherra Belgíu, Charles Michael, lýst því yfir að skólar, háskólar og lestarkerfi borgarinnar yrðu lokuð á morgun. Hæsta viðbúnaðarstigi var lýst yfir í gær, laugardag, sem leiddi til þess að verslunum, kaffihúsum og opinberum byggingum var lokað.

Blaðamannafundur saksóknara var í beinni útsendingu á Sky News sem fylgist áfram vel með gangi mála. Útsendinguna má sjá hér að neðan en hægt er að spóla til baka í spilaranum til að sjá blaðamannfundinn.

Þessi frétt var síðast uppfærð klukkan 23:59



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×