Innlent

Sextán ára tók þátt í björgun drengjanna tveggja: Björgunaraðgerðirnar þokukenndar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"Við hjálpuðumst að við mamman. Við náðum taki á öðrum stráknum en það var mjög erfitt. Það var mjög mikill straumur í hringiðunni og það var erfitt að komast upp úr,“
"Við hjálpuðumst að við mamman. Við náðum taki á öðrum stráknum en það var mjög erfitt. Það var mjög mikill straumur í hringiðunni og það var erfitt að komast upp úr,“ vísir/ernir/eva
Hin sextán ára Eva Röver vann mikið afrek er hún aðstoðaði við björgun drengjanna tveggja sem festust í affalli við stífluna í Læknum í Hafnarfirði á þriðjudag. Hún segir atburðinn þokukenndan og á erfitt með að skilja hvernig hlutirnir atvikuðust. Óútskýranlegt afl hafi tekið völdin sem líklega hafi orðið börnunum til lífs.

Eva er nemandi í Lækjarskóla og var daginn örlagaríka á leið til vinkonu sinnar þegar hún heyrði hróp frá ungri stúlku sem þurfti á aðstoð að halda. Hún segist ekki hafa áttað sig á alvarleika málsins fyrr en hún var komin að stíflunni ásamt móður drengjanna og systur. Mbl.is greindi fyrst frá málinu.

Erfitt að komast upp úr straumhörðu vatninu

„Við hjálpuðumst að við mamman. Við náðum taki á öðrum stráknum en það var mjög erfitt. Það var mjög mikill straumur í hringiðunni og það var erfitt að komast upp úr,“ segir Eva í samtali við Vísi og bætir við að vatnið hafi náð um sig miðja.

„Ég brákaðist á hendinni og er líka marin á fótunum. Ég man samt ekkert eftir að hafa meitt mig neitt, þetta bara kom. Ég man vel eftir sumum pörtum atviksins en eiginlega ekkert eftir að lögreglan kom. Litla stelpan var í smá tíma hjá mér eftir þetta og ég reyndi að hugga hana og fá hana til að hugsa um eitthvað annað,“ segir hún.

Stóð sig eins og hetja

Eva segist hafa orðið fyrir töluverðu áfalli en er afar þakklát fyrir góðan stuðning frá fólkinu í kringum sig og Lækjarskóla. „Það eru allir mjög stoltir af mér. Ég er búin að vera í samskiptum við fjölskyldu strákanna og hitti þau í gær. Ég var mjög áhyggjufull en er ánægð með að þeir sýni svona góðan bata.“

Kristín Röver, móðir Evu, segist afar stolt af dóttur sinni. Það hafi þó verið erfitt að fá símtal frá ókunnugri konu úr síma Evu. „Ég man eiginlega ekki eftir símtalinu. Ég held að konan hafi kynnt sig en ég man ekki nafnið. Hún sagði mér að eitthvað hefði gerst en ég man bara að ég átti að sækja dóttur mína,“ segir hún.

„Þetta er auðvitað áfall. Þetta er erfið lífsreynsla fyrir ungling á þessum aldrei en hún stóð sig eins og hetja. Hún er búin að fá frábært aðhald bæði í skólanum og fékk að hitta fjölskylduna, lögreglumennina og alla sem komu að þessu. Þannig að það er vel haldið utan um þessa dömu,“ bætir hún við. 

Fjallað var um drengina tvo í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Felix Valsson, sérfræðingur í svæfingu og gjörgæslu, sagði frá því sagði að kælimeðferð sem drengurinn undirgekkst hafi aukið lífslíkur hans umtalsvert. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×