Innlent

Sextán ára tekinn undir stýri á druslu

Nánast allt var í ólagi við bíl, sem lögreglan stöðvaði í Hafnarfirði upp úr miðnætti, auk  þess sem ökumaðurinn var aðeins 16 ára og því réttindalaus. Að sögn lögreglu var bíllinn dældaður allan hringinn, rúða var brotin í honum og öll ljósker brotin og bíllinn því ljóslaus nema hvað enn týrði á einu stöðuljósi.

Annað ástand  bílsins var eftir þessu og var ölvaður eigandi bílsins farþegi í honum. Mál ökumannsins unga var afgreitt í samráði við foreldra hans, en lögregla klippti númerin af bílnum og tók hann í sína vörslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×